News
30.1.2008
Frost á fróni
Eins og flestir Íslendingar hafa tekið eftir er búið að vera afskaplega kalt um dagana, en folöldin finna lítið fyrir þeim kulda þar sem þau eru inni, rökuð og í heitu húsi.
Þó brugðu sum sér út og sýndu fallega takta fyrir myndavélina, en nánari upplýsingar og myndir er að finna í Hross í okkar eigu.
Graðhesturinn Maríus frá Vestri-Leirárgörðum, sem er nýlega komin í okkar eigu, er einnig kominn þar inn ásamt höfðingjanum Herkúles frá Stóra-Langadal.
Ungir hestar sem fá að halda kúlunum nokkur ár í viðbót eru einnig komnir þar inn ásamt myndum, og nokkrar ungar merar sem við ætlum að halda fyrir okkur í bili.
Einnig er frá því að segja að öll hross á útigangi eru komin á gjöf og allt gott er að frétta af þeim, þó svo að kuldinn nísti svolítið, enda ekkert eðlilegt veðurfar.
Nokkrar ræktunarmerar hafa einnig verið settar til sölu, en þær má finna hér
Von er á fleiri myndum á næstu dögum af t.d. trippunum og folöldunum ásamt því að áætlunin er að heimsækja stóðið og smella af nokkrum hjá þeim.

8.1.2008
Hestarnir þurfa nú líka að skreppa til Tannsa
Nútímatæknin hefur þróast mikið á undanförnum árum, en ekki einungis fyrir menn.
Guðmar Auðbertsson, dýralæknir á Stuðlum á Selfossi, skrapp í heimsókn til okkar og raspaði hana Regínu fyrir okkur. Hann kom með alls kyns græjur og dót og best af öllu, röspunarvél.
Merin brást bara vel við þessu nýja fyrirbæri sem stungið var upp í kjaftinn á henni, og eflaust finnst henni betra að vera laus með gaddinn.

Guðmar einbeittur við störfin
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
Flettingar í dag: 114
Gestir í dag: 24
Flettingar í gær: 246
Gestir í gær: 53
Samtals flettingar: 258455
Samtals gestir: 49822
Tölur uppfærðar: 1.8.2010 09:29:52
Eldra efni
