News

25.5.2008

Söluhross



Fleiri hross eru komin á sölusíðuna, m.a. Breyting frá Sperðli, Herkúles frá Hala og Forkólfur frá Þórunúpi. Úrvalshross og fullt af myndum!
Endilega kíkið á það.

Skrifað 25.5.2008 kl. 23:21 af Smárahestar

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

25.5.2008

Fimm merar!



Enn sem komið er eru fimm folöld fædd hér að Smáratúni, og viti menn - allt merar!
Meyja frá Höfn 2 kastaði bleikálóttri meri undan Herkúles frá Stóra-Langadal og hlaut sú skvísa nafnið Ólympía.
Tófa frá Eyrabakka kastaði þeim skemmtilega lit,  leirljósblesóttu folaldi en hún er kölluð Sýn frá Smáratúni og er undan fyrstu verðlauna Töfrasyni, Sjón frá Hákoti. Sýn er síðasta folaldið sem við fáum undan Tófu.
Gáta frá Smáratúni gekk með fyli undan Gangster frá Sperðli og kastaði  jarpskjóttri píu um daginn, en hún hlaut einmitt nafnið Pía frá Smáratúni.
Snót frá Sperðli kastaði jarpri hryssu undan Herkúles frá Stóra-Langadal og köllum við merina Filmu frá Smáratúni en hún er jörp eins og móðir sín.
Í fyrradag kastaði leirljósa merin, Salka frá Álfhólahjáleigu brúnskjóttri meri undan Gangster frá Sperðli, en folaldið heitir Skutla frá Smáratúni.




Ólympía frá Smáratúni kíkir á ljósmyndarann.

Fleiri myndir má sjá
hér

Skrifað 25.5.2008 kl. 20:11 af Smárahestar

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

13.5.2008

Folald undan Meyju og Herkúles


30 apríl síðastliðinn kastaði Meyja merfolaldi undan Herkúles. Gerðist Kiddi þá ljósmyndari og festi á filmu merina vera að kasta. Folaldið hlaut nafni Ólympía frá Smáratúni og er bleikálótt. Fleiri myndir er hægt að finna í Myndir í valmyndinni hér að ofan.

Skrifað 13.5.2008 kl. 22:16 af Smárahestar

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

13.5.2008

Starfskraftur óskast



Starfskraftur óskast til aðstoðar við tamningar í sumar að Smáratúni.
VIðkomandi myndi geta búið hjá okkur í fullu fæði og húsnæði. Frábær aðstaða fyrir bæði menn og dýr og skemmtilegar og góðar reiðleiðir.

Endilega hafið samband á e-mailið
smaratun@gmail.com eða í síma 8696888 (Kiddi)

Skrifað 13.5.2008 kl. 20:52 af Smárahestar

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 171
Gestir í dag: 29
Flettingar í gær: 246
Gestir í gær: 53
Samtals flettingar: 258512
Samtals gestir: 49827
Tölur uppfærðar: 1.8.2010 10:12:49