News

31.7.2008

Ný Söluhross



Þá eru loks komin ný hross á sölusíðurnar. Við höfum bætt við helling af trippum og einnig eru mörg folöld, fædd þetta sumarið komin inn á. Við ákváðum loks að smala saman hrossunum upp á efstu-mýri svo hægt væri að skella nokkrum myndum af þeim hingað inn. Þau voru öll í rosalegu fínu standi, folöldin orðin búttuð og fín og trippin búin að þroskast gríðarlega.
Á döfinni eru fleiri myndir af tittunum, nýjum folöldum og svo einhverju öðru sem kemur upp.


Sandra og Spói á góðum sumardegi

Viljum einnig endilega minna á það að frábærum og skemmtilegum kettlingum vantar heimili, en það eru 3 þrílitar læður, 1 svört og hvít læða og svo 1 gulbröndóttur högni.


Gotið hjá Skutlu

Svo er það gotið hjá Jasmín, en í því eru 2 högnar, bröndóttur og svo annar svartur og hvítur(loðinn), meðan læðan er þrílit(loðin).


Læðan undan Jasmín og Högna


Skrifað 31.7.2008 kl. 17:58 af Smárahestar

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

15.7.2008

 

Það er búið að vera lægð í heimasíðunni undanfarið en unnið er hörðum höndum við að koma því í lag.
Listi yfir stóðhestana sem við notuðum sumarið 2008 er komin og einnig er kominn nýr linkur yfir graðhesta sem við höfum til sölu. Lagfæringar við myndirnar eru nú að mestu afstaðnar og einnig er von á myndum af tittunum okkar á næstunni.
Myndir af Völu frá Kastalabrekku og Framtíð frá Núpi I eru komnar og einnig nýjar myndir af graðhestunum Hrannari frá Núpi I og Hring frá Hemlu.

Nú eru aðeins 2 hvolpar eftir úr gotinu hjá Lexí og Trygg. Það eru þeir Rex og Rökkvi sem eftir eru en systur þeirra en báðar farnar. Myndir af Rex, Rökkva og foreldrunum eru allar inná Myndalinknum.



Hringur frá Hemlu - til sölu

 

Skrifað 15.7.2008 kl. 13:08 af Smárahestar

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 114
Gestir í dag: 24
Flettingar í gær: 246
Gestir í gær: 53
Samtals flettingar: 258455
Samtals gestir: 49822
Tölur uppfærðar: 1.8.2010 09:29:52