News

23.6.2009

Smellur


Smellur er móálóttur veturgamall graðhestur til sölu. Hann er undan Sinir frá Hábæ og Smugu frá Hábæ.
Faðir Smells, Sinir, er 4 vetra graðhestur undan Álfasteini frá Selfossi og Slettu frá Hábæ. Móðir Smells, Smuga, er undan 1 verðlauna hestinum Smið frá Miðsitju og Bylgju frá Hábæ.

Smellur er virkilega efnilegur og fallegur hestur, en Sinir er einmitt einnig faðir slettuskjótta graðhestsins Ofsa frá Smáratúni.

Smellur is a blue dun, 1 year old stallion for sale. His sire is Sinir from Hábæ and Smuga from Hábæ.
Smellur's father, Sinir, is a 4 year old stallion sired by Álfasteinn frá Selfossi and Sletta frá Hábæ. Smellur's mother, Smuga, is sired by the 1 prized stallion Smiður from Miðsitju and Bylgja from Hábæ.

Smellur is really promising and good looking young colt. Sinir is also the father of our chestnut pinto stallion, Ofsi from Smáratún.




Skrifað 23.6.2009 kl. 21:20 af Smárahestar

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

19.6.2009

Söluhross


Nú eru komnar tvær nýjar merar inn á sölusíðuna, en það eru þær Frigg frá Þingeyrum og Tíbrá frá Lækjarbakka.


Frigg frá Þingeyrum er brúnskjótt 7 vetra meri undan Gamm frá Steinnesi og Frumu frá Stangarholti. Hún er klárhryssa með tölti, virkilega þæg og meðfærileg. Nánast hver sem er getur riði Frigg en hún er ósköp indælt og snoturt reiðhross.




Tíbrá frá Lækjarbakka er rauð 7 vetra meri undan Víglund frá Vestra-Fíflholti og Dömu frá Víðivöllum. Hún er sammæðra Einingu frá Lækjabakka, keppnishryssu Lenu Zielinski, en Eining hefur verið að vera það mjög gott á keppnisvellinum og sigraði meðal annars Ístöltið árið 2008. Tíbrá er alhliða hryssa og mjög efnileg. Hún er með góðan vinnuvilja og skemmtileg hryssa en er þó ekki fyrir alveg óvana.




Einnig eru komnar inn nýjar myndir af Viktoríu frá Höfn í Mín Hross og Auði frá Bakkakoti inn í Merar til sölu. Einnig bættum við nýjum myndum af Hvell frá Smáratúni í Trippi til sölu.


Viktoría frá Höfn


Hvellur frá Smáratúni

Skrifað 19.6.2009 kl. 0:13 af Smárahestar

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

6.6.2009

Hrund


Þá er komið enn eitt folaldið en það er rauð hryssa undan Hervör frá Gerðum og Storm frá Leirulæk. Hún fæddist 4. Júní og hlaut nafnið Hrund.

Skrifað 6.6.2009 kl. 18:29 af Smárahestar

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

3.6.2009

Fyrsta hryssan

Þá er Syrpa frá Stóra-Langadal búin að kasta fjórða folaldinu á þessum bæ. Folaldið fæddist 1. júní og er undan Herkúles frá Stóra-Langadal. Þetta er jafnfram fyrsta hryssan sem fæðist þetta árið. Hryssan virðist kippa ágætlega í kyn Herkúlesar þar sem hún er bleikálótt. Nú bíður maður bara spenntur eftir fleiri folöldum.



Skrifað 3.6.2009 kl. 20:57 af Smárahestar

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 114
Gestir í dag: 24
Flettingar í gær: 246
Gestir í gær: 53
Samtals flettingar: 258455
Samtals gestir: 49822
Tölur uppfærðar: 1.8.2010 09:29:52