News
31.7.2008
Ný Söluhross
Þá eru loks komin ný hross á sölusíðurnar. Við höfum bætt við helling af trippum og einnig eru mörg folöld, fædd þetta sumarið komin inn á. Við ákváðum loks að smala saman hrossunum upp á efstu-mýri svo hægt væri að skella nokkrum myndum af þeim hingað inn. Þau voru öll í rosalegu fínu standi, folöldin orðin búttuð og fín og trippin búin að þroskast gríðarlega.
Á döfinni eru fleiri myndir af tittunum, nýjum folöldum og svo einhverju öðru sem kemur upp.
Sandra og Spói á góðum sumardegi
Viljum einnig endilega minna á það að frábærum og skemmtilegum kettlingum vantar heimili, en það eru 3 þrílitar læður, 1 svört og hvít læða og svo 1 gulbröndóttur högni.
Gotið hjá Skutlu
Svo er það gotið hjá Jasmín, en í því eru 2 högnar, bröndóttur og svo annar svartur og hvítur(loðinn), meðan læðan er þrílit(loðin).
Læðan undan Jasmín og Högna
Flettingar í dag: 114
Gestir í dag: 35
Flettingar í gær: 319
Gestir í gær: 80
Samtals flettingar: 267085
Samtals gestir: 52164
Tölur uppfærðar: 9.9.2010 12:02:57
Eldra efni
