News

29.4.2009

Eitthvað að gerast


Nú er þetta búin að vera frekar dauð síða undanfarið, en ætlunin er að bæta úr því á næstunni. Nú er alveg verið að dæla nýjum hestum inn á fullu og hérna fáiði smá "preview" af því sem komið er.

Bættum við nokkrum hrossum inn á Mín hross og erum einnig búin að setja nýjar myndir af mörgum þeirra. Svo erum við einnig búin að bæta merinni Völu frá Kastalabrekku inn á Merar til Sölu.


Vala frá Kastalabrekku er 5 vetra brún meri undan Geirfugli frá Feti og Valdísi frá Haukagili. Hún er um það bil 2 mánaða tamin. Hún er fimmgangshryssa með góðar gangtegundir.
Verð : 600.000 ISK



Tónn Frá Húsavík er rauðtvístjörnóttur geldingur undan Sjón frá Húsavík og Nýpu frá Kirkjubæ. Hann er alveg hörku góður reiðhestur.



Einnig vorum við að fá gelding undan Kolfinni frá Kjarnholtum I, hann Jagúar frá Kjarnholtum I. Jagúar er jarpur og er alveg virkilega skemmtilegur og góður reiðhestur.



Við bættum einnig Þrótt frá Hólum inn á, en sá sérstaki hestur er aldursforsetinn á eftir Herkúles frá Stóra-Langadal. Þróttur er undan Ljóra frá Kirkjubæ og Þöll frá Hólum og er í sérstöku uppáhaldi á þessum bæ. Alveg frábær reiðhestur í alla staði.



Við bættum einnig myndum af Snót frá Stokkhólma inn á, en hún er undan Byskup frá Hólum og Blágránu frá Stokkhólma. Ætlunin er að setja hana í ræktun á þessu ári.



Ný mynd af Von frá Stóra-Langadal er einnig komin inn á, en Von er hálfsystir Herkúlesar. Þau eru bæði undan Kolskegg frá Ásmundarstöðum, en Von er einnig undan Glóð frá Skáney. Von fer einnigí ræktun en hún er mjög fínt reiðhross.




Skrifað 29.4.2009 kl. 19:08 af Smárahestar

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 146
Gestir í dag: 29
Flettingar í gær: 246
Gestir í gær: 53
Samtals flettingar: 258487
Samtals gestir: 49827
Tölur uppfærðar: 1.8.2010 09:51:42