News

19.6.2009

Söluhross


Nú eru komnar tvær nýjar merar inn á sölusíðuna, en það eru þær Frigg frá Þingeyrum og Tíbrá frá Lækjarbakka.


Frigg frá Þingeyrum er brúnskjótt 7 vetra meri undan Gamm frá Steinnesi og Frumu frá Stangarholti. Hún er klárhryssa með tölti, virkilega þæg og meðfærileg. Nánast hver sem er getur riði Frigg en hún er ósköp indælt og snoturt reiðhross.




Tíbrá frá Lækjarbakka er rauð 7 vetra meri undan Víglund frá Vestra-Fíflholti og Dömu frá Víðivöllum. Hún er sammæðra Einingu frá Lækjabakka, keppnishryssu Lenu Zielinski, en Eining hefur verið að vera það mjög gott á keppnisvellinum og sigraði meðal annars Ístöltið árið 2008. Tíbrá er alhliða hryssa og mjög efnileg. Hún er með góðan vinnuvilja og skemmtileg hryssa en er þó ekki fyrir alveg óvana.




Einnig eru komnar inn nýjar myndir af Viktoríu frá Höfn í Mín Hross og Auði frá Bakkakoti inn í Merar til sölu. Einnig bættum við nýjum myndum af Hvell frá Smáratúni í Trippi til sölu.


Viktoría frá Höfn


Hvellur frá Smáratúni

Skrifað 19.6.2009 kl. 0:13 af Smárahestar

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 114
Gestir í dag: 24
Flettingar í gær: 246
Gestir í gær: 53
Samtals flettingar: 258455
Samtals gestir: 49822
Tölur uppfærðar: 1.8.2010 09:29:52