News
10.9.2009
Fleiri söluhross
Erum búin að bæta inn nokkrum söluhrossum til viðbótar, en það eru þrír geldingar og þrjár merar.
Spillir er 10 vetra geldingur undan Ask frá Kanastöðum og Rakel frá Viðborðsseli 1. Hann er mjög góður 5-gangs reiðhestur sem ekki er fyrir alveg óvana.
Spillir frá Kanastöðum
Einnig eru komnir inn tveir 4 vetra klárar sem eru ótamdir, en það eru þeir Bjartur og Dagur frá Álfhólahjáleigu. Þeir eru báðir jarpir.
Dagur frá Álfhólahjáleigu
Spurning er 6 vetra gömul meri undan Þyril frá Sperðli og Prinsessu frá Kanastöðum. Hún er virkilega þæg og ljúf töltmeri sem hentar öllum í fjölskyldunni.
Síðan eru það Heiðvík (4 vetra) og Meyja (6 vetra) frá Álfhólahjáleigu. Heiðvík er brún hryssa sem er ótamin en Meyja er rauð hryssa sem er frumtamin.
Flettingar í dag: 114
Gestir í dag: 35
Flettingar í gær: 319
Gestir í gær: 80
Samtals flettingar: 267085
Samtals gestir: 52164
Tölur uppfærðar: 9.9.2010 12:02:57
Eldra efni
